25.9.2009 | 13:35
Síðasta bloggið - hafa sagt skilið við grímulausan auðvaldsspunann samvisku sinnar vegna
Ég er hættur að blogga hér fyrir fullt og allt og er þetta síðasta færslan sem ég skrifa hér (þó mega auðvaldsdindlarnir eiga von á því að ég mæti í athugasemdakerfið þeirra þegar þeir síst eiga von á því í lofsöng sínum á Foringjanum og FLokknum).
Fyrr skal ég dauður liggja áður en Davíðsæskan kemst til valda á Íslandi í kjölfar kreppunnar sem hann átti mestan þátt í að gera 100 sinnum verri hér en í öðrum löndum.
Munum að það er ekki Baugsmiðlaáróður að Time Magazin valdi Davíð Oddsson á top 25 lista sinn yfir helstu orsakavalda heimskreppunnar.
Nýja bloggið mitt er að finna á: http://blogg.visir.is/tj/
|
„Fortíðin til framdráttar“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Kæru lesendur,
Viðbjóðurinn og ógeðið heldur áfram og nú hefur þjóðníðingur nr. 1 Davíð Oddsson verið ráðinn sem ritskoðari fjölmiðils spillingarveldis Sjálfstæðisflokksins - Morgunblaðsins og mbl.is.
Undir þessum kringumstæðum sé ég ekki að nokkur maður með heiðarlegt bein í skrokknum geti ljáð slíkum miðli nafn sinn á einn eða annan máta og því mun ég hætta að blogga á moggablogginu vegna þessa viðbjóðas.
Ég ætla að skrifa loka færsluna síðar í kvöld eða um helgina sem verður ítarleg umfjöllun um þetta mál. Og geri ég ráð fyrir að siðlaust hyskið muni umsvifalaust henda út þeirri færslu því þar mun ég orða hlutina eins og þeir eru (kæmi mér ekki á óvart ef fasísk ritskoðunarstefnan sem nú fer í gang ritskoði þessa færslu líka og því birti ég hana líka á nýja bloggsvæðinu mínu).
Ég ætla ekki að loka aðgangi mínum að blogginu því ég vil getað komið inn í umræður þar sem hægri öfgahyskið lætur sem hæst í trúboði sínu á moggablogginu (ef Davíð og nýja stefnan verður ekki þegar búin að þagga niður í tjáningarfrelsinu og loka fyrir aðgang minn).
Fyrst um sinn ætla ég að blogga á vísisblogginu a.m.k. þangað til ég finn mér nýjan og betri samastað.
Hef nú þegar stofnað aðgang þar og er hægt að finna mig hér: http://blogg.visir.is/tj
Sjáumst e.t.v. á bloggheimum síðar - lifi byltingin og niður með auðvaldsviðbjóðinn sem nú hefur ælt yfir þjóð okkar enn einu sinni!
Kv. Þór Jóhannesson
P.s. ég veit að þið öfga hægra hyski og ofsatrúarlið fagnið því að ég skuli kveðja moggabloggið svo endilega sleppið því að segja mér það líka í athugasemdunum hér fyrir neðan.
P.s.s. enn fremur hvet ég allt heiðarlegt fólk til hætta að blogga hér og auðvitað að segja upp áskrift sinni að Morgunblaðinu.
|
Davíð og Haraldur ritstjórar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
24.9.2009 | 17:02
Hættur að blogga (hér) vegna viðbjóðsins sem Árvakur býður þessari þjóð upp á með ráðningu Davíðs Oddssonar
Kæru lesendur,
Viðbjóðurinn og ógeðið heldur áfram og nú hefur þjóðníðingur nr. 1 Davíð Oddsson verið ráðinn sem ritskoðari fjölmiðils spillingarveldis Sjálfstæðisflokksins - Morgunblaðsins og mbl.is.
Undir þessum kringumstæðum sé ég ekki að nokkur maður með heiðarlegt bein í skrokknum geti ljáð slíkum miðli nafn sinn á einn eða annan máta og því mun ég hætta að blogga á moggablogginu vegna þessa viðbjóðas.
Ég ætla að skrifa loka færsluna síðar í kvöld eða um helgina sem verður ítarleg umfjöllun um þetta mál. Og geri ég ráð fyrir að siðlaust hyskið muni umsvifalaust henda út þeirri færslu því þar mun ég orða hlutina eins og þeir eru (kæmi mér ekki á óvart ef fasísk ritskoðunarstefnan sem nú fer í gang ritskoði þessa færslu líka og því birti ég hana líka á nýja bloggsvæðinu mínu).
Ég ætla ekki að loka aðgangi mínum að blogginu því ég vil getað komið inn í umræður þar sem hægri öfgahyskið lætur sem hæst í trúboði sínu á moggablogginu (ef Davíð og nýja stefnan verður ekki þegar búin að þagga niður í tjáningarfrelsinu og loka fyrir aðgang minn).
Fyrst um sinn ætla ég að blogga á vísisblogginu a.m.k. þangað til ég finn mér nýjan og betri samastað.
Hef nú þegar stofnað aðgang þar og er hægt að finna mig hér: http://blogg.visir.is/tj
Sjáumst e.t.v. á bloggheimum síðar - lifi byltingin og niður með auðvaldsviðbjóðinn sem nú hefur ælt yfir þjóð okkar enn einu sinni!
Kv. Þór Jóhannesson
P.s. ég veit að þið öfga hægra hyski og ofsatrúarlið fagnið því að ég skuli kveðja moggabloggið svo endilega sleppið því að segja mér það líka í athugasemdunum hér fyrir neðan.
P.s.s. enn fremur hvet ég allt heiðarlegt fólk til hætta að blogga hér og auðvitað að segja upp áskrift sinni að Morgunblaðinu.
|
Uppsagnir hjá Árvakri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.9.2009 | 19:54
Verði spilltasti pólitískus landsins ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins hætti ég að blogga á moggabloggi
Það er með ólíkindum hvað þetta gerspillta samfélag hefur ekkert breyst þegar sögusagnir berast um að sá spilltasti af þeim allra spilltustu Davíð Oddsson sé að öllum líkindum verðandi ritstjóri auðvaldssnepilsins.
Ég hef því ákveðið að draga nafn mitt út úr þessum viðbjóðslega vef ef svo fer og hef ég þegar undirbúið brotthvarf mitt með því að stofna blogg á Vísisblogginu sem má finna hér:
P.s. annars vil ég taka fram að ég mun koma hingað inn til að benda á hvernig spillingarritstjórinn hefur áhrif á fréttaflutning mbl vefsins - eða þar til þeir beita skoðanakúgun eins og þeim er einum lagði þarna í öfgahægri armi stjórnmálanna og sagan hefur ítrekað sýnt fram á.
|
Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.9.2009 | 23:09
Drög að heimsmeti?
Ef auðvaldsbatteríið Genarl Mills myndi nú sjá sóma sinn í því að henda ofan á þessa milljónir lítra af mjólk eins og nokkrum tugum þúsunuda af hafrahringjum (Cheerios) að þá fengi Evrópa öll frían morgunverð í eins og dag eða tvo.
Það yrði sannarlega heimsmet sem vekti eftirtekt!
p.s. hvernig segir maður "1.000 kall" í fleirtölu?
|
Helltu milljónum lítra mjólkur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.9.2009 | 11:28
Langar svoooo að vera þingmaður
Þetta er nú meiri trúðurinn - Valgeir Skagfjörð. Talar um lýðræði og lætur svo í það skína að það sé á hans valdi hvort Þráinn fái að vera með aftur eða ekki. En það skiptir ekki miklu máli, því það er orðið sjúklega pínlegt að hlusta á þennan mann sem splittaði Borgarahreyfingunni í örvæntingafullri tilraun sinni til að verða háttvitur þingmaður. Þór Saari fór frá í skamman tíma í sumar og þá fékk Valgeir smjörþefinn sem varaþingmaður hans og hefur síðan reynt allt til að komast sjálfur inn í stað Þórs.
Merkilegt hvað maður með svona takmarkaðan kjörþokka getur dregið hina svokölluðu "grasrót" langt með sér á asnaeyrunum.
Vona að þessi lélegi brandari sem Borgarahreyfingin er kunni að sjá sóma sinn í því að leggja sjálfan sig niður eins upphaflega var lofað að gera ef augljóst yrði að markmiðum hreyfingarinnar yrði ekki náð - og gott fólk, það er augljóst að þeim verður aldrei náð!
|
Vilja Þráin aftur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
17.9.2009 | 18:25
Nú byrja þráhyggjubloggararnir að hrópa og æpa ásamt þingmönnum hrunaflokkanna en skynsamur almenningur er hættur að hlusta
Það sem gerir mig enn meira undrandi í garð hrunaflokkanna en sú staðreynd að þeir hafi leyft samfélagi okkar að þróast í það spilltasta og siðlausasta sem fyrir finnst í hinum vestræna heima er hvernig þeir haga sér eftir að þeim var bolað frá völdum. Auðvitað á þetta frekar um auðvalds- og spillingarflokkinn frekar en litlu gleðikonuna hans Framsókn því síðarnefndi hrunaflokkurinn var ekki við stjórn þegar allt hrundi - þó hann hafi sannarlega lagt grunninn að hruninu.
Ef við rifjum upp hvernig VG brást við fyrstu vikurnar og mánuðina eftir samfélags- og bankahrunið að þá sjáum við hvernig sómakær stjórnmálaflokkur hegðar sé á ögurstundu. Þar drógu menn nefnilega saman seglin í pólitíkinni og leyfðu valdhöfunum (þá Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu) að vera í friði í rústabjörguninni. Þessu tók ég sérstaklega eftir og spurði mig oft á tíðum hvað menn væru að hugsa að nota ekki tækifærið til að stinga oddhvössum spjótum í pólitíska andstæðinga. En siðferðið og heiðarleikinn var slíkur að menn fengu frið þar til nóg var komið og auðvitað kom að því fyrir rest enda var ríkisstjórn Geirs H. Haarde óhæfasta gerspillingar ríkisstjórn sem um getur í sögunni.
Þennan sóma og ærlegheit hafa aftur á móti gerspillingarflokkarnir tveir alls ekki sýnt nýrri ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn byrjaði strax og um var að ræða neyðarstjórn minnihluta og svo sá Framsókn eftir öllu saman og byrjaði að reyna að stjórna ríkisstjórninni sem þeir lofuðu að verja falli með hótunum og viðbjóði áður en til kosninga kom. Strax eftir þær fékk vinstri stjórnin ekki eina mínútu í vinnufrið og byrjaði lýðskrumið og upphrópið strax á fyrsta degi, og fóru þar hæst formenn hrunaflokkanna tveggja - Sigmundur Davíð Guðlaugsson og Bjarni Benediktsson sem nú hefur komið í ljós að eru mjög óvinsælir stjórnmálamenn (meira að segja í sínum eigin flokkum).
Nýjar hæðir náðust í lýðskruminu þegar stuttbuxnadrengir frjálshyggjunnar og framsóknarattaníossar þeirra úr InDefence brandaranum fóru að hrópa og kalla yfir IceSlave afleiðinni frá aðal eigendum Sjálfstæðisflokksins. Og lýðurinn lét blöffa sig með því það er, jú, sárt að borga skuldir annarra (en gleymum aldrei að það var Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn sem gengust í þessar ábyrgðir þegar Valgerður Sverrisdóttir var viðskiptaráðherra, því þá fékk Landsbankinn að hafa IceSlave í formi útibús en stofnaði ekki dótturfélög utan um reikningana eins og allar siðferðisreglur gera ráð fyrir (mikill er máttur Davíðs þegar Bjöggarnir vinir hans eru annars vegar)).
En steininn tók svo úr þegar höfundurinn af hruninu og aðal klappstýra hans mættu á mótmæli vegna IceSlave neyðar ríkisstjórnarinnar og þá kom í ljós hvers konar skríll var í mótmælunum því þeir fengu að vera það óáreittir (fyrir utan örlítil hróp sem voru gerð að Hannesi Hólmsteini), því ef einhver dugur hefði verið í þeim sem voru að mótmæla þá og það sannir Íslendingar að þá hefðu þessir tveir arkitektar hrunsins aldrei komist á brott ótjargaðir og ófiðraðir.
Og nú reyna dindlarnir að halda áfram og strax er kúlulánadrottningin (munið að eiginmaðurinn fékk afskrifaða á þjóðina 793 milljónir frá Kaupþing með einu pennastriki) Þorgerður Katrín farin að hrópa eftir lýðskrumurnum og þeir farnir að blogga í upphrópunum.
En nú segi ég, gerði svo vel fólk er farið að átta sig á þráhyggjusjúklingunum á blogginu sem sjá skrattann í hverju horni, Jón Valur Jensson og öfgagengið úr Heimssýn ásamt Halli Magnússyni (Hannesi Hólmsteini Framsóknarflokksins eins og einn bloggarinn orðaði það) er svo hjákátlegt í skítkasti sínu gegn fólkinu sem er að reyna að taka til eftir það að maður gleðst yfir því að lesa óhróðurinn frá þeim frekar en að láta hann trufla sig.
|
Ekki „afsláttur" af fyrirvörum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
16.9.2009 | 16:22
Áfellisdómur yfir stjórnarandstöðunni
Það gleður mitt vinstri sinnaða hjarta að sjá hversu skýr skilaboð þessi þjáða þjóð er að senda stjórnarandstöðunni. Það er nefnilega fyrst og fremst hrunaflokkarnari sem þar dvelja sem bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir okkur og lýðskrumið og upphrópanirnar sem formenn þessa óyndisflokka hafa iðkað í garð ríkisstjórnarinnar (sem er að reyna að moka skítinn eftir þá) eru augljóslega ekki að skila þeim vinsældunum sem þeir ætluðu að yrði niðurstaðan.
Niðurstaðan er sem sagt þessi: Áfellisdómur yfir stjórnarandstöðunni.
Stór plús fyrir almenning í þessu landi flokksdindla og spillingar. Kannski er smá von eftir allt saman!
|
Steingrímur nýtur mest trausts |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.9.2009 | 19:17
Ég er gargandi reiður...
... og því ætla ég ekki að segja neitt annað en þetta:
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri - LANDRÁÐAHYSKI
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar - LANDRÁÐAHYSKI
Gísli Marteinn Baldursson, - LANDRÁÐAHYSKI
Kjartan Magnússon, - LANDRÁÐAHYSKI
Júlíus Vífill Ingvarsson, - LANDRÁÐAHYSKI
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, - LANDRÁÐAHYSKI
Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, - LANDRÁÐAHYSKI
Og síðast en alls ekki síst fær sérstakur einkavinur spillingar í samfélaginu:
Óskar Bergsson, - LANDRÁÐAHYSKI
Leggið þessi nöfn á minnið og gleymið ALDREI hvað þau gerðu þjóðinni með viðbjóðnum sem þau samþykktu í dag.
|
Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
14.9.2009 | 20:26
Íslenska mafían ætlar að gefa orkuna okkar til erlendra bræðra sinna á morgun kl. 14:00
Fyrst hér er (loksins) frétt sem inniheldur hugtakið mafía að þá ætla ég að nota tækifærið og skrifa um íslensku mafíuna úr Valhöll sem er að tryggja að orkan okkar verði ekki bara gefin erlendum kapítalistum heldur þurfum við að borga með henni eins og bönkunum. Það á að viðhafa nákvæmlega sömu vinnubrögð og þegar mafíósarnir hafa blóðmjólkað allt fjármagn í eigin vasa (og vasa vina sinna úr Valhöll) að þá munum við fá allt í hausinn aftur með tapi x 1.000 (munið að Landsbankinn var seldur á 11 milljarða en við fengum hann í hausinn með 2.000 milljarða skuld og að ennþá hefur ekki einu sinni verið greiddur helmingurinn af þessum upphaflegu 11 milljörðum).
Við verðum að standa saman gegn þessu arðráni peningaaflanna á okkur og börnum okkar og fyrst að kjörnir fulltrúar eru tilbúnir að svíkja þjóðina svona er ekkert annað að gera en að mótmæla hástöfum og það strax.
Öreigabloggarinn (nafnbót sem auðvaldsattaníossi gaf mér um daginn og ég þigg með þökkum) hvetur alla byltingarsinna og hugsandi fólk sem vettlingi getur valdið að mæta á pallana á borgar(ó)stjórnarfundi á morgun kl:14:00 og mótmæla hástöfum auðlindagjöfinni til erlendra kapítalista. Þetta MÁ ekki gerast!!
Sættum okkur ekki við þessa misskiptingu lengur gott fólk
|
Mafían sökkti skipi með geislavirkum úrgangi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tenglar
Bloggarar sem ekki nota moggablogg
Bloggvinir
-
ak72
-
annaragna
-
arnaringvarsson
-
halo
-
beggipopp
-
birgitta
-
brell
-
diesel
-
eask
-
eliasth
-
folkerfifl
-
geimveran
-
killjoker
-
frussukusk
-
imyndun
-
gragnar
-
veravakandi
-
haugur
-
heidistrand
-
hildigunnurr
-
himmalingur
-
hinrikthor
-
hjorleifurg
-
disdis
-
danjensen
-
konnster
-
haddih
-
imbalu
-
svartur
-
joiragnars
-
nonniben
-
nonniblogg
-
ravenyonaz
-
kleopatra
-
kolladogg
-
kristbjorn20
-
stjaniloga
-
larahanna
-
mhannibal
-
manisvans
-
neddi
-
offari
-
ragnar73
-
runirokk
-
sibba
-
siggith
-
stormsker
-
duchess
-
nordurljos1
-
mrmojo
-
vefritid
-
vilbogi
-
vilhjalmurarnason
-
snjolfur
-
hreinsamviska
-
kreppukallinn
-
molta
-
reykur
-
asmundur
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
linublogg
-
svarthamar
-
ace
-
alla
-
baldis
-
malacai
-
aliber
-
andreskrist
-
skarfur
-
flinston
-
hugdettan
-
formosus
-
launafolk
-
carlgranz
-
dlove
-
einaraxel
-
jari
-
einarben
-
gustichef
-
nidurgangur
-
finni
-
gregg
-
gudmunduroli
-
gudmundursteinn
-
zeriaph
-
hlynurh
-
fridust
-
keli
-
jakobk
-
kreppan
-
jogamagg
-
molinn
-
kjarri
-
ksh
-
leifur
-
ludvikludviksson
-
mannkerti
-
vistarband
-
ridartfalls
-
shsverris
-
siggisig
-
sigurdursig
-
sivvaeysteinsa
-
skrilllydsson
-
athena
-
svennip
-
tara
-
tryggvim
-
thorrialmennings
-
valdivest
-
tbs
-
thorsaari
-
aevark
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.3.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 50
- Frá upphafi: 233766
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar











